Ferill 563. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 920  —  563. mál.



Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um lögskráningu sjómanna, nr. 43/1987, með síðari breytingum.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ragnhildi Hjaltadóttur frá samgönguráðuneyti.
    Með frumvarpinu er lagt til að frestur sjómanna til að sækja lögboðna öryggisfræðslu í Slysavarnaskóla sjómanna eða hjá öðrum viðurkenndum aðila verði bundin við þá dagsetningu sem sjómaður er skráður á námskeið í skólanum.
    Námskeið í öryggisfræðslu er eitt af skilyrðum lögskráningar. Erfiðlega hefur þó gengið að fá sjómenn til að sækja þessi námskeið og hafa margir hverjir oft frestað töku þess og komist upp með það framan af svo sem rakið er í athugasemdum við frumvarpið.
    Frumvarpið er lagt fram til að bregðast við því ástandi sem skapast hefur eftir að lögskráningarumdæmi fóru að synja mönnum um lögskráningu á þessum grundvelli um síðustu áramót, en síðan þá hafa orðið til miklir biðlistar.
    Ljóst er að þau tilvik geta komið upp þar sem óviðráðanlegar aðstæður valda því að sjómaður sem fengið hefur frest samkvæmt frumvarpinu getur ekki sótt námskeið sem hann hefur skráð sig á. Nauðsynlegt er að þeir aðilar sem málið varðar bregðist við slíkum aðstæðum þannig að það valdi sem minnstri röskun á stöðu og högum viðkomandi sjómanns og mælist nefndin til þess að þetta verði haft í huga.
    Nefndin leggur til smávægilega orðalagsbreytingu á 1. gr. frumvarpsins.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með svofelldri

B    REYTINGU:

    Í stað orðanna „eða á annan hátt eftir því sem nánar er ákveðið í reglugerð“ í a-lið 1. gr. komi: eða öðrum viðurkenndum aðila.

    Lúðvík Bergvinsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 6. mars 2002.



Guðmundur Hallvarðsson,


form., frsm.


Hjálmar Árnason.


Sigríður Ingvarsdóttir.



Arnbjörg Sveinsdóttir.


Þorgerður K. Gunnarsdóttir.


Jónas Hallgrímsson.


                                  

Kristján Möller.



Jón Bjarnason,


með fyrirvara.