Ferill 344. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 939  —  344. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um geislavarnir.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Vilborgu Hauksdóttur frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti, Sigurð Magnússon frá Geislavörnum ríkisins, Guðrúnu Ástu Sigurðardóttur frá Samtökum verslunarinnar, Jónínu Guðjónsdóttur frá Félagi geislafræðinga og Eyjólf Sæmundsson frá Vinnueftirlitinu.
    Þá bárust nefndinni umsagnir um málið frá Félagi íslenskra röntgenlækna, Löggildingarstofunni, Persónuvernd, Samtökum verslunarinnar, Tækniskóla Íslands, Geislavörnum ríkisins, Félagi geislafræðinga, Tryggingastofnun ríkisins, Samtökum atvinnulífsins, Vinnueftirliti ríkisins, Læknafélagi Íslands, Eyþingi – Sambandi sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu, Hollustuvernd ríkisins, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum og Krabbameinsfélagi Íslands.
    Með frumvarpinu eru lögð til ný heildarlög um geislavarnir. Talsverðar áherslu- og viðhorfsbreytingar hafa orðið í geislavörnum í heiminum frá því að núgildandi lög voru sett. Koma þær meðal annars fram í nýjum leiðbeiningum Alþjóðageislavarnaráðsins og tveimur nýjum tilskipunum frá Evrópusambandinu um þetta efni. Rétt er að taka fram að geislavarnir innan Evrópusambandsins byggjast á svonefndum EURATOM-samningi frá 1956 en hann er ekki hluti af samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og ber Íslendingum því ekki á þeim grundvelli skylda til að innleiða evrópskar reglur á þessu sviði. Engu að síður hafa heilbrigðisyfirvöld lagt á það áherslu að laga íslenska löggjöf og framkvæmd að löggjöf og framkvæmd geislavarna innan Evrópusambandsins og er það vel.
    Frumvarpið felur í sér nokkur nýmæli og eru þau talin upp í athugasemdum við frumvarpið.
    Helsta nýmæli frumvarpsins er þó fólgið í því að lagt er til að gildissvið laga um geislavarnir verði víkkað út þannig að þau taki einnig til ójónandi geislunar. Í þessu sambandi fjallaði nefndin sérstaklega um það hvort þetta hefði í för með sér skörun á milli starfssviðs Geislavarna ríkisins og Vinnueftirlits ríkisins. Samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum ber Vinnueftirlitinu að hafa eftirlit með ójónandi geislun á vinnustöðum og hefur því eftirliti verið sinnt. Nefndin telur nauðsynlegt að verksvið hvors aðila sé skýrt og gerir hún breytingartillögur við frumvarpið sem miða að því að það eftirlit sem Vinnueftirlitið hefur haft með höndum haldist óbreytt frá því sem nú er.
    Nefndin vill taka það fram að hún telur nauðsynlegt að sambærilegar reglur gildi um eftirlit og ráðstafanir til að koma í veg fyrir skaðlega geislun um borð í loftförum. Eins og málum er nú háttað heyrir þetta undir samgönguráðuneytið og flugmálayfirvöld. Samstarf

Prentað upp.

hefur verið með aðilum um þetta eftirlit en nauðsynlegt er að mati nefndarinnar að því séu settar fastar skorður. Samkvæmt upplýsingum nefndarinnar fer nú fram vinna innan Evrópusambandsins og á norrænum vettvangi um setningu reglna á þessu sviði.
    Samkvæmt 5. gr. frumvarpsins er lagt til að Geislavarnir ríkisins haldi skrá yfir niðurstöður einstaklingsbundins eftirlits með geislun fyrir einstaka starfsmenn. Í 14. gr. er síðan gerð grein fyrir þeim skilyrðum sem þessi skráning er bundin og jafnframt tekið fram að hún skuli fara eftir lögum um persónuvernd. Þetta felur í sér að Persónuvernd getur sett frekari skilyrði fyrir skráningunni og vinnslu þeirra upplýsinga sem í skrána fara í samræmi við lög um persónuvernd. Með þessu telur nefndin að ýtrustu aðgætni sé gætt varðandi öryggi vinnslu persónuupplýsinga.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er grein fyrir í sérstöku þingskjali.
    Helstu breytingar eru eftirfarandi:
     1.      Samkvæmt frumvarpinu nær eftirlit Geislavarna ríkisins til flutnings á geislavirkum efnum og geislatækjum. Um þetta gilda sérstakar reglur, sbr. lög nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, og reglugerð nr. 984/2000, um flutning á hættulegum farmi, sbr. einnig lög nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir. Nefndin leggur því til að þetta hlutverk Geislavarna ríkisins verði fellt út úr frumvarpinu.
     2.      Lagðar eru til breytingar sem miða að því að skerpa skilin á milli starfssviðs Geislavarna ríkisins og Vinnueftirlits ríkisins.
     3.      Lagt er til að nefndarmönnum í geislavarnaráði verði fækkað úr fimm í þrjá.
     4.      Í 7. gr. er ráðherra veitt heimild til að ákveða með reglugerð að innflutningur tiltekinna flokka geislatækja sem gefa frá sér ójónandi geislun skuli háður leyfi. Innflutningur á jónandi geislatækjum er einungis tilkynningarskyldur samkvæmt frumvarpinu. Til að gæta samræmis og koma í veg fyrir að ekki gildi strangari reglur um ójónandi tæki, sem eru að jafnaði minna skaðlegri en jónandi geislatæki, leggur nefndin til að ráðherra geti einungis ákveðið að innflutningur þessara tækja skuli vera tilkynningarskyldur.
     5.      Í 15. gr. er fjallað um þau skilyrði sem fyrir hendi þurfa að vera til að það geti talist réttlætanlegt að beita læknisfræðilegri geislun. Lagt er til nýtt orðalag á 2. mgr. Breytingin hefur í raun ekki efnisbreytingu í för með sér, en gert er ráð fyrir að nánari skilyrði verði sett í reglugerð.

Alþingi, 7. mars 2002.



Jónína Bjartmarz,


form., frsm.


Ásta Möller.


Katrín Fjeldsted.



Ásta R. Jóhannesdóttir.


Þuríður Backman.


Margrét Frímannsdóttir.