Ferill 685. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1207  —  685. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2002.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Helgu Hauksdóttur frá utanríkisráðuneyti og Jón B. Jónasson frá sjávarútvegsráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á samningi milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2002.
    Í samningnum er líkt og í samningi aðila á síðasta ári kveðið á um að færeyskum skipum sé heimilt á loðnuvertíðinni 2002/2003 að veiða allt að 10.000 lestir af loðnu innan lögsögu Íslands úr veiðiheimildum sem fengnar eru með samningum færeyskra og grænlenskra stjórnvalda. Þá er kveðið á um gagnkvæmar heimildir skipa hvors aðila til kolmunnaveiða innan lögsögu hins á árinu 2002 og að íslenskum skipum verði heimilt að veiða allt að 1.300 lestir af makríl og 2.000 lestir af síld annarri en norsk-íslenskri innan færeyskrar lögsögu á árinu 2002.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Lára Margrét Ragnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 11. apríl 2002.



Sigríður A. Þórðardóttir,


form., frsm.


Rannveig Guðmundsdóttir.


Magnús Stefánsson.



Þórunn Sveinbjarnardóttir.


Vilhjálmur Egilsson.


Þuríður Backman.



Einar K. Guðfinnsson.


Jónína Bjartmarz.