Ferill 599. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1229  —  599. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um stefnumótun um aukið umferðaröryggi.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Stefán Eiríksson frá dómsmálaráðuneyti, Óla H. Þórðarson frá Umferðarráði, Ingimund Einarsson frá lögreglustjóranum í Reykjavík, Rögnvald Jónsson frá Vegagerðinni, Jón Bjartmarz frá ríkislögreglustjóra, Ágúst Mogensen og Jón Baldursson yfirlækni frá rannsóknarnefnd umferðarslysa, Þorleif Pálsson, sýslumann í Kópavogi, Runólf Ólafsson frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, Guðbrand Bogason frá Ökukennarafélagi Íslands, Rúrik Vatnarsson frá Sjóvá-Almennum tryggingum og Sigmar Ármannsson frá Sambandi íslenskra tryggingafélaga.
    Í tillögunni er gert ráð fyrir að fyrir lok ársins 2012 verði með sameiginlegu átaki ríkis, sveitarfélaga, fyrirtækja og áhugahópa um öryggismál stefnt að fækkun alvarlegra umferðarslysa um 40% miðað við fjölda slysa árin 2000 og 2001.
    Nefndin gerir sér grein fyrir að tillagan um umferðaröryggisáætlun 2002–2012 felur í sér viðamiklar aðgerðir sem munu kalla á aukið fjármagn til umferðarmála. Nefndin telur þó að þær muni leiða til verulegs sparnaðar með fækkun umferðarslysa og leggur því áherslu á nauðsyn þess að fjármagn verði tryggt til framkvæmdar áætlunarinnar. Jafnframt telur nefndin brýnt að gert verði hið fyrsta kostnaðarmat fyrir áætlunina sem lögð verði fyrir allsherjarnefnd strax á næsta þingi. Í máli gesta nefndarinnar kom fram að markmið síðustu umferðaröryggisáætlunar hafi í meginatriðum gengið eftir þrátt fyrir mikla fjölgun bíla í umferð en það hafi fyrst og fremst verið samstöðu og einhug viðkomandi aðila að þakka og er því mikilvægt að eins vel verði staðið að framkvæmd þessarar umferðaráætlunar. Í athugasemdum með þingsályktunartillögunni er vísað til skýrslu starfshóps um umferðaröryggisáætlunina og er greint frá helstu niðurstöðum hans í 15 liðum. Þar er gengið út frá því að skipaðar verði m.a. tvær nefndir. Annars vegar umferðaröryggisnefnd sem ætlað er að leggja fram tillögu að stefnu stjórnvalda í umferðaröryggismálum sem tekin yrði fyrir á Alþingi og afgreidd þaðan og hins vegar framkvæmdanefnd sem hafi það meginverkefni að tryggja að unnið sé í samræmi við umferðaröryggisáætlunina og að markmiðum Alþingis og stjórnvalda verði náð. Nefndin áréttar að nefndirnar verði skipaðar sem fyrst og að umferðaröryggisnefnd forgangsraði án tafar þeim verkefnum sem áætlunin gerir ráð fyrir. Nefndin tekur að öðru leyti ekki afstöðu til fyrrnefndra atriða í athugasemdum með tillögunni þótt þau hafi verið rædd í nefndinni en telur rétt að leggja áherslu á eftirfarandi. Í umfjöllun nefndarinnar kom fram að í meiri hluta alvarlegra umferðarslysa liggur orsökin hjá ökumanninum sjálfum. Ástæðurnar eru fyrst og fremst taldar ölvunarakstur, hraðakstur, svefnleysi og þreyta auk hirðuleysis um notkun öryggisbúnaðar. Nefndin telur því sýnt að markmiði umferðaröryggisáætlunar verði ekki náð án þess að örva og virkja vitund almennings með öflugri og markvissri fræðslu og forvarnastarfi og breyta þannig viðhorfum hans til umferðaröryggismála. Það sé ekki síður mikilvægt að almenningur sé meðvitaður um þá ábyrgð sem felst í því að setjast undir stýri. Af þeirri ástæðu leggur nefndin til breytingu á tillögugreininni um að almenningur komi að sameiginlegu átaki ríkis, sveitarfélaga, fyrirtækja og áhugahópa um umferðaröryggismál. Þá telur nefndin afar mikilvægt að þáttur þreytu og svefnleysis í umferðarslysum verði skoðaður nánar og í kjölfarið verði úrræði og fræðsla til almennings þar að lútandi aukin. Nefndin ræddi skráningu slysa og vekur í því sambandi athygli á slysavarnaráði sem starfar samkvæmt lögum nr. 33/1994, um slysavarnaráð. Tilgangur þess er að stuðla að fækkun slysa og skal ráðið m.a. móta reglur sem miða að því að slys séu skilmerkilega skráð og sú skráning sé samræmd, jafnframt því sem séð verði um úrvinnslu upplýsinganna og útgáfu á slysatölum. Þá skal samræmd slysaskrá varðveitt hjá landlækni og mótar ráðið reglur um framkvæmd skráningar og aðgang að upplýsingum úr skránni. Bendir nefndin á að þessi samræmda skráning geti nýst vel í þágu rannsókna og til eflingar umferðaröryggismálum. Enn fremur kynnti nefndin sér störf rannsóknarnefndar umferðarslysa og gerir sér grein fyrir mikilvægu hlutverki hennar. Þá áréttar nefndin að samkvæmt tillögunni er ætlunin að fækka alvarlegum umferðarslysum um 40% sem er mun meira en gert er ráð fyrir í nýsamþykktri heilbrigðisáætlun til ársins 2010 en þar er gert ráð fyrir að dánartíðni og örorka vegna umferðarslysa minnki um a.m.k. 25%. Loks leggur nefndin til að sérstaklega sé tekið fram í tillögugreininni að stefnt sé að fækkun banaslysa eins og kveðið er á um í athugasemdum með þingsályktunartillögunni.
         Nefndin telur að um nauðsynlegt átak sé að ræða og leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:

    Við tillögugrein:
     a.      Á eftir orðinu „fækkun“ í 1. málsl. komi: banaslysa og annarra.
     b.      Í stað orðanna „og áhugahópa um umferðaröryggismál“ í 2. málsl. komi: áhugahópa um umferðaröryggismál og alls almennings.

    Lúðvík Bergvinsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Kolbrún Halldórsdóttir sat fund nefndarinnar og er samþykk áliti þessu.

Alþingi, 17. apríl 2002.



Þorgerður K. Gunnarsdóttir,


form., frsm.


Jónína Bjartmarz.


Kjartan Ólafsson.



Ásta Möller.


Katrín Fjeldsted.


Ólafur Örn Haraldsson.



Guðrún Ögmundsdóttir.


Guðjón A. Kristjánsson.