Ferill 636. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1269  —  636. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 162/2001, um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Nikulás Hannigan og Önnu Jóhannsdóttur frá utanríkisráðuneyti og Sigrúnu Ágústsdóttur, Sigríði A. Arnardóttur og Guðlaug Sverrisson frá umhverfisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 162/2001 frá 11. desember 2001, um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/53/EB frá 18. september 2000, um úr sér gengin ökutæki.
    Tilskipunin markar heildarramma um meðhöndlun allra farartækja sem eigendur vilja losa sig við og felur það í sér að koma þarf upp kerfi sem nær til alls landsins og tryggir móttöku allra bílflaka og, að því marki sem unnt er, annars úrgangs og hluta sem fjarlægðir eru við viðgerðir bifreiða. Felur þetta m.a. í sér að leggja þarf sérstakt úrvinnslugjald á bifreiðar og að fjármunum sem þannig innheimtast verði varið til að reksturs kerfisins.
    Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi og samkvæmt upplýsingum frá umhverfisráðuneyti er hafinn undirbúningur við endurskoðun löggjafar en þeirri vinnu verður ekki lokið fyrr en með haustinu.
    Nefndin vekur athygli á því að nauðsynlegar breytingar á innlendri löggjöf munu ekki ná fram að ganga innan þess frests sem gefinn er til að innleiða tilskipunina hér á landi.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Lára Margrét Ragnarsdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 12. apríl 2002.



Sigríður A. Þórðardóttir,


form., frsm.


Rannveig Guðmundsdóttir.


Magnús Stefánsson.



Vilhjálmur Egilsson.


Steingrímur J. Sigfússon.


Einar K. Guðfinnsson.



Jónína Bjartmarz.