Ferill 459. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1286  —  459. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um alþjóðlega ráðstefnu um sjálfbæra þróun og nýtingu lífríkis á Vestur-Norðurlöndum.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Einar Odd Kristjánsson, formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins.
    Með tillögunni er farið fram á að ríkisstjórn Íslands, í samvinnu við landstjórnir Færeyja og Grænlands, haldi alþjóðlega ráðstefnu um sjálfbæra þróun og nýtingu lífríkis á Vestur-Norðurlöndum en tillagan byggist á tilmælum nr. 2/2001 sem samþykkt voru á ársfundi Vestnorræna ráðsins á Grænlandi 2001.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Lára Margrét Ragnarsdóttir, Rannveig Guðmundsdóttir og Einar K. Guðfinnsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 18. apríl 2002.



Sigríður A. Þórðardóttir,


form., frsm.


Magnús Stefánsson.


Þórunn Sveinbjarnardóttir.



Katrín Fjeldsted.


Ögmundur Jónasson.


Jónína Bjartmarz.