Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Jú, ég tel það ekki heppilegt. Ég tel að löggjafinn eigi að marka annað rekstrarform sem grundvöll fyrir almannaþjónustu af þessu tagi. Ég er ánægður með það í sjálfu sér að það sé sett eitthvert hámark á þann arð sem hægt er að taka út úr stofnunum eða fyrirtækjum sem hafa verið markaðsvædd en eiga að sinna almannaþjónustu. Þetta er leið sem Bandaríkjamenn hafa farið t.d. til að koma í veg fyrir að fjárglæframenn geri sér slíka þjónustu að féþúfu. Hver þessi prósenta á að vera er svo annað mál en 7% er sæmilegur arður. Lífeyrissjóðirnir eru að kaupa húsbréf með mun minni ávöxtun. Þetta er traust ávöxtun sem þeim þykir arðvænleg og ég held að það sé alveg rétt hjá hæstv. félmrh. að fyrirtæki sem sérhæfa sig í almannaþjónustunni horfa mjög til vatnsveitnanna vegna þess að þar er örugg uppspretta ekki bara vatns heldur auðs þegar til langs tíma er litið.
Ég held að við eigum að gaumgæfa þessi mál mjög rækilega og ekki flýta okkur um of. Ég tel að við eigum að setja þetta frv. í frost eða breyta því og heimila þarna annað rekstrarform, byggðasamlög hugsanlega en ekki fara út á þessa braut.