Vatnsveitur sveitarfélaga

Þriðjudaginn 21. janúar 2003, kl. 18:34:13 (2864)

2003-01-21 18:34:13# 128. lþ. 61.4 fundur 422. mál: #A vatnsveitur sveitarfélaga# (rekstrarform, arðgreiðslur o.fl.) frv., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 61. fundur, 128. lþ.

[18:34]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef reynslu af því að hv. þm. er mjög krítískur á alla einkavæðingu hverju nafni sem hún nefnist. Það er ég að vissu leyti líka svo að við deilum þeirri skoðun að hluta til. Hins vegar tel ég að hann gangi of langt stundum í ótta sínum við hlutafélagavæðingu. Ég tel að ekki sé ástæða til þess að fordæma hlutafélagarekstur í öllum tilfellum með sama hætti og hv. þm. gerir.