Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Þetta mál hefur komið til umræðu í þinginu áður. Ég hef svarað því til að á vegum forsrn. hefur farið fram allmikil undirbúningsvinna er snertir hugsanlega skiptingu verka á milli ráðuneyta, hugsanlega sameiningu þeirra og nýja málefnaskiptingu. Þá á ég ekki við þá þætti sem hv. þm. nefndi sérstaklega og hlutast var til um í upphafi þessa kjörtímabils sem ég hygg að hafi út af fyrir sig reynst ágætlega.
Ég vænti þess að við náum enn að koma fram á þessu þingi breytingum sem snúa að matvælaeftirliti sem ég hygg að sé verulegur stuðningur við í þinginu að fái stöðu undir einum hatti. Eins og kunnugt er skarast þar mál á milli þriggja ráðuneyta. Þar er ekki mjög hagfellt eins og við vitum. Ég vænti þess að þau mál eigi að geta náðst fram og klárast fyrir lok þessa þings þó að þingdagar séu ekki margir eftir.
Að öðru leyti á ég ekki von á að stórbreytingar náist fram á þessu kjörtímabili hvað verkaskiptingu ráðuneyta varðar að öðru leyti. Er það reynsla manna að eftir að til ríkisstjórnarsamstarfs hefur verið gengið vill verða flókið að færa verkefni til milli ráðuneyta, breyta skipan þeirra, draga verkefni frá einu og færa til annars. Í þennan hóp þarf ekki að útskýra hverju það sætir og hvaða lögmál búa þar að baki. Milli stjórnarflokka þarf að ríkja ákveðið jafnvægi meðan stjórnarsamstarf stendur yfir. Það er eðlilegt og er vandasamt og viðkvæmt mál að raska þar málum, ekki bara milli flokka heldur milli einstakra ráðherra einnig, jafnvel þó að þeir séu úr sama flokki. Þetta höfum við orðið vör við í umræðunni um matvælaeftirlit, að það er hægara um að tala en í að komast að sætta ráðuneytin við flutning á stórum verkefnum milli ráðuneyta.
Varðandi félagsþáttinn sem hv. þm. nefndi var, eins og ég hygg að hún hafi getið um, skipaður starfshópur til að gera úttekt á og skilgreina hvaða stofnanir og verkefni á sviði heilbr.- og trmrn. væru í raun félagsleg verkefni og eðlilegra væri að heyrðu undir félmrn. Einnig var starfshópnum falið að fjalla um verkaskiptingu ráðuneyta í þágu fatlaðra. Það hefur einnig komið til umræðu nokkrum sinnum í þinginu eins og menn muna.
Í bréfi sem ég fékk frá formanni starfshópsins kom fram, bréfi sem ég fékk í lok nóvember, að þessi viðfangsefni hefðu reynst mjög viðamikil, margbrotin og ólík innbyrðis, eins og þar sagði, með leyfi forseta. Einnig sagði þar að ekki hafi reynst unnt að fjalla um verkaskiptingu ráðuneytanna án tillits til þeirrar þjónustu sem um ræðir á hverju sviði fyrir sig. Því höfðu verkefni þessa starfshóps dregist á langinn og fyrirsjáanlegt var talið að þeim lyki ekki í bráð. Að öðru leyti taldi þessi starfshópurinn að við þessa stöðu væri eðlilegast að verkefni starfshópsins féllu undir almenna heildarendurskoðun á Stjórnarráðinu sem menn hafa reynt að vinna að og undirbúa.
Þetta er staða málsins eins og hún er í dag, nokkuð svipuð og ég lýsti ekki fyrir margt löngu úr þessum ræðustól. Ég á ekki von á að það náist fyrir þinglok nú í vor að setja punkt fyrir aftan þetta starf, að því frátöldu að ég teldi nauðsynlegt að koma matvælaeftirlitsþáttunum vel fyrir vind.