Fyrirspyrjandi (Rannveig Guðmundsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég tek undir það með formanni Samfylkingarinnar, ég batt miklar vonir við þetta ákvæði í stjórnarsáttmálanum og hef reyndar verið að ýta á afmarkaðan þátt málsins. Það sem hefur gerst hjá þessari ríkisstjórn er að hún fjölgaði ráðuneytum úr tíu í tólf, talaði um að endurskoða bæði þátt stofnana og flytja þær jafnvel á milli ráðuneyta og hagræða í Stjórnarráðinu, en það hefur ekki verið gert eins og hér hefur komið fram og talað um mikla undirbúningsvinnu.
Hér er spurt hvort hægt sé að fá eitthvert áfangamat nefndarinnar. Ef það er verið að tala um nefndina sem sett var á laggir varðandi félagsleg verkefni er það nú svo að hér var afgreidd ályktun frá Alþingi 1996, starfshópur stofnaður 1997, þrír fundir haldnir á árinu 1997. Nefndin dó. Fyrirspurnir voru ítrekaðar hér í þinginu um störf nefndarinnar, hvort hún ætti að halda áfram. Núna í nóvember, fimm árum síðar, er nefndin lögð af með bréfi til forsrh. Það hanga á spýtunni mjög alvarleg mál, e.t.v. fyrir marga lítil, svo sem túlkaþjónusta fyrir heyrnarlausa. Öll þessi ár hefur túlkaþjónusta og borgun fyrir hana verið ófrágengin. Fyrst var málinu vísað í þessa nefnd, sem í raun starfaði ekki, og síðan hefur verið veitt fé til bráðabirgða af ráðstöfunarfé ríkisstjórnar og nú síðast var því svarað, þegar kallað var eftir að reyna að lögbinda rétt heyrnarlausra til túlkaþjónustu samkvæmt nefnd sem skilaði skýrslu árið 2001, að nú væri búið að leggja nefndina af og það yrði bara skoðað síðar.
Í fimm ár hafa t.d. réttindi þessa hóps hangið í lausu lofti af því að málum hefur verið fyrir komið svo sem ég hef rakið hér.