Fyrirspyrjandi (Einar K. Guðfinnsson):
Virðulegi forseti. Fyrir fáeinum árum hafði ég forustu um að biðja um skýrslu frá hæstv. heilbrrh. varðandi stöðu meðferðarheimila í landinu. Skýrsla þessi var síðan lögð fram og eftir að hafa farið yfir hana var það niðurstaða okkar fimm hv. þm. að leggja fram till. til þál. um mótun heildarstefnu um uppbyggingu og rekstur meðferðarstofnana.
Allir þekkja dæmi um neikvæðar afleiðingar af neyslu áfengis og vímuefna og við vitum að hið opinbera hefur varið allverulegu fjármagni til þess að stuðla að meðferðarúrræðum og þess vegna skiptir mjög miklu máli til að ná árangri í baráttu við þennan mikla vágest að vel sé að verki staðið og að það sé gert með þeim hætti að það sé bæði hagkvæmt en þó alveg sérstaklega tryggi góðan árangur.
Þegar þessi þróun er skoðuð á undanförnum árum blasir það t.d. við að þær stofnanir sem með einum eða öðrum hætti stunda eða leggja til meðferðarúrræði eru orðnar allmargar og í þessari skýrslu kom fram að hér kunni að vera um að ræða 30 stofnanir, heimili eða deildir sem með einhverjum hætti sinna þessum verkefnum. Kostnaðurinn á þeim tíma sem skýrslan náði til, þ.e. frá árinu 1993 til 2000, hafði vaxið að raungildi um 44%, sem í senn væntanlega endurspeglar vaxandi þörf og kannski líka meiri meðvitund eða vitund fólks um það að bregðast við og leggja til þessi meðferðarúrræði.
Það skiptir því mjög miklu máli hvernig að þessum málum er staðið. Þessari meðferð er sinnt með margvíslegum hætti, bæði af hálfu ríkisins, í samstarfi við áhugamannafélög, í samstarfi við sveitarfélög og fleiri aðila sem að slíkum málum koma. Það sem mér hefur fundist vera ekki alls kostar ljóst er hvernig ákvarðanir eru teknar til að mynda um stofnun þessara meðferðarstofnana. Hver kemur að því, hver ber hina faglegu ábyrgð, hver ber hina fjárhagslegu ábyrgð o.s.frv.?
Öllum er ljóst að meðferðarúrræði þurfa að vera fjölbreytileg til þess að ná árangri en þó er það svo að í skýrslunni sem ég nefndi áðan kom fram að ekki hafi farið fram mat á árangrinum af þessum meðferðum. Þess vegna var sérstaklega fjallað um það í þessari skýrslubeiðni og í þáltill. Því hef ég leyft mér, virðulegi forseti, að leggja fram eftirfarandi spurningu til hæstv. heilbrrh.:
Hvað líður störfum nefndar sem fékk það hlutverk að móta heildarstefnu um uppbyggingu á sviði áfengis- og vímuefnameðferðar og þátttöku ríkisins í stofnkostnaði og rekstri meðferðarstofnana?