Ráðherranefnd um fátækt á Íslandi

Mánudaginn 27. janúar 2003, kl. 15:12:30 (3025)

2003-01-27 15:12:30# 128. lþ. 65.1 fundur 370#B ráðherranefnd um fátækt á Íslandi# (óundirbúin fsp.), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 65. fundur, 128. lþ.

[15:12]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Á þessari stundu hefur eingöngu verið ákveðið að tilhlutan félmrh. og með samþykki annarra ráðherra í ríkisstjórninni að fara í þessa rannsóknarvinnu með fjórum fulltrúum ráðuneytanna og reyna að vinna hana hratt. En í framhaldinu kemur auðvitað til greina og gæti verið sjálfsagt að eiga sem nánasta samvinnu við þá aðila sem að þessum málum koma í þjóðfélaginu.