Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Í fyrsta lagi er ljóst að við teljum rangt af Evrópusambandinu að vera með einhverja útreikninga á því hvað við kynnum að þurfa að greiða værum við aðilar að Evrópusambandinu. Við erum það alls ekki og það liggur engin umsókn fyrir um það og því kemur það þessu máli ekki við, sem eru samningar okkar við það um framhald að því er varðar Evrópska efnhagssvæðið.
Hvernig þetta væri síðan fer allt eftir því hvaða forsendur menn gefa sér. Sumir halda því fram að við njótum slíkra kjara á innri markaði að við ættum þess vegna að greiða mikið fyrir það. Nú er það t.d. ljóst að við borgum verulega tolla af sjávarafurðum inn til Evópusambandsins og það liggur líka fyrir að vegna þeirra tolla verður minni verðmætaaukning hér á landi en annars mundi verða. Við erum t.d. ekki með neinn síldariðnað hér á landi og þá á ég við vörur í neytendaumbúðum svo dæmi sé tekið.
Það er tiltölulega auðvelt að reikna út hvað þjóðir þurfa að greiða brúttó inn til þessara samtaka en hins vegar eru ýmsir annmarkar á því hvað kemur til baka. Það fer eftir samningsniðurstöðu í samningum og það fer líka eftir því hversu duglegir aðilar eru að sækja stuðning í margvíslegum málum. Hefur þetta t.d. best sannast að því er varðar rannsóknir á sviði vísinda hér á landi. Það er ekki alltaf auðvelt að segja til um það fyrir fram þannig að þetta fer allmikið eftir því hvaða forsendur menn gefa sér. En menn geta hjá Evrópusambandinu ekki gengið út frá því fyrir fram að við höfum þann gífurlega hag af þessu sem fram hefur komið hjá nokkrum aðilum í málflutningi.