Álverksmiðja í Reyðarfirði

Þriðjudaginn 28. janúar 2003, kl. 22:31:19 (3138)

2003-01-28 22:31:19# 128. lþ. 66.10 fundur 509. mál: #A álverksmiðja í Reyðarfirði# frv., ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur, 128. lþ.

[22:31]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Herra forseti. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hæstv. iðnrh. bregst við með þessum hætti. Ég tala um það að ríkisstjórnin og þar með hæstv. ráðherra hafi farið illa með almannafé, sólundað almannafé og ég nefni dæmi máli mínu til stuðnings. Ég hef farið yfir þessa ráðagerð, þessi stóriðjuáform ríkisstjórnarinnar, og fært rök fyrir máli mínu. En hæstv. ráðherra gerir það sem hún hefur gert áður þegar hún kemst í bobba og á engin svör, að hún svarar með þögninni einni.