Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Það var aðallega eitt sem ég ætlaði að bregðast hér við í ræðu hv. þm. Hún heldur því fram að raforkuverð í Þýskalandi hafi hækkað. Í nýrri skýrslu sem ég hef undir höndum stendur að á tímabilinu 1995--2001 hafi raforka til iðnaðar lækkað um 29% og til almennings um 5%. Þær fullyrðingar sem hv. þm. var með hér uppi standast því ekki.
Líka hefur verið talað um orkuskort í Svíþjóð, hátt verð í Noregi og þar fram eftir götunum. Ég hef miklar athugasemdir við þessar fullyrðingar. Hvað varðar Svíþjóð er ástæða nýlegra vandamála sú að verið er að loka kjarnorkuverinu í Barsebäck í áföngum og það er algjörlega óháð þessari tilskipun. Hvað varðar Norðurlöndin eru orkufyrirtæki þar almennt í opinberri eigu þannig að það er ekki sanngjarnt að tengja þau við slæma einkavæðingu.
Hv. þm. spurði sérstaklega hverjir hagsmunir neytenda í þessu væru og fullyrti að verð hefði almennt hækkað. Það er bara ekki rétt. Það hefur sýnt sig að þar sem gengið er hvað lengst í frjálsræðinu --- við höfum upplýsingar um þetta allt sem verða kynntar í iðnn. --- lækkar verðið mest.
Svo er það líka neytendamál að hafa þetta gagnsætt þannig að fólk hafi einhverja hugmynd um hvernig raforkuverð verður til. Það veit fólk ekki í dag. Það er margt í þessu sem er jákvætt fyrir neytendur.