Guðjón Guðmundsson:
Herra forseti. Árásir Samfylkingarinnar á forseta Alþingis undanfarna daga eru fyrir neðan allar hellur. Um hvað snýst þetta mál? Það snýst um það að Samfylkingin sendir forsn. bréf í haust og fer þess á leit við nefndina að hún beiti sér fyrir því að ríkisendurskoðandi birti skýrslu sem hann hafði unnið fyrir stjórn Landssímans. Forseti lætur kanna málið eftir lögfræðilegum leiðum og í fyllingu tímans leggur hann fyrir nefndina niðurstöðu tveggja lögfræðinga, skrifstofustjóra Alþingis og prófessors við háskólann. Báðar leiða til sömu niðurstöðu, að ríkisendurskoðanda sé óheimilt að birta þessa skýrslu. Hvað átti þá forseti Alþingis að gera? Átti hann að segja ríkisendurskoðanda að gera það samt þó að hann mætti það ekki? Ætli það hefði ekki hvinið einhvers staðar í og einhver efnt til utandagskrárumræðu um það? Ég á von á því.
Forseti Alþingis afgreiddi málið auðvitað eins og honum bar samkvæmt niðurstöðu þessara færu lögmanna og allar árásir á hann eru ómaklegar og ódrengilegar og Samfylkingunni til skammar.