Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):
Herra forseti. Á dögunum ræddum við versnandi atvinnuástand í landinu og sérstaklega á suðvesturhorninu. Þá gat hæstv. félmrh. um að þess hefði verið farið á leit við hæstv. samgrh. að flýtt yrði verkefnum hér á svæðinu í samgöngumálum. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra: Hvaða verkefnum hyggst hann flýta til þess að bæta atvinnuástandið og hvar á höfuðborgarsvæðinu? Eða hefur hann orðið við tilmælum hæstv. félmrh. um að flýta verkefnum eins og fram kom í umræðunni á dögunum?