Samgönguáætlun fyrir árin 2003--2006

Þriðjudaginn 04. febrúar 2003, kl. 16:11:18 (3370)

2003-02-04 16:11:18# 128. lþ. 71.8 fundur 563. mál: #A samgönguáætlun fyrir árin 2003--2006# þál., 469. mál: #A samgönguáætlun fyrir árin 2003--2014# þál., HBl (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur, 128. lþ.

[16:11]

Halldór Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. samgrh. þessar undirtektir. Mér var það ljóst á sínum tíma að þar sem ekki var nægileg eftirspurn eftir slíku flugi þá þótti réttara að fara þá leið sem hæstv. ráðherra lýsti. Nú er hins vegar komið á daginn að vegna mikilla framkvæmda á Austurlandi er umferð meiri en áður hafði verið reiknað með og ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans góðu undirtektir.