Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um Siglingastofnun Íslands, nr. 6/1996, með síðari breytingum.
Með frv. er lagt til að fela Siglingastofnun Íslands að annast framkvæmd væntanlegrar vaktstöðvar siglinga í samræmi við frv. þess efnis sem liggur fyrir Alþingi. Þar er lagt til að fela Siglingastofnun Íslands framkvæmd þeirra laga og er því lagt til hér að bæta þessum tölulið við 3. gr. laganna þar sem talin eru verkefni stofnunarinnar.
Jafnframt er lagt til í frv. að veita íslenskum yfirvöldum lagaheimild til að gerast aðilar að Siglingaöryggisstofnun Evrópu og er það í samræmi við skuldbindingar vegna aðildar Íslands að samningnum um hið Evrópska efnahagssvæði.
Á undanförnum árum hefur vaxandi tilhneigingar gætt hjá Evrópusambandinu að koma á fót sérstökum stofnunum er starfi á innri markaðinum án tillits til landamæra aðildarríkjanna. Þótt eðli þeirra og valdheimildir séu með ýmsum hætti er algengt að þessar stofnanir hafi með höndum umsýslu og undirbúning löggjafar fyrir hönd framkvæmdastjórnarinnar á tilteknum sviðum.
Verkefni Siglingaöryggisstofnunar Evrópu eru m.a. eftirfarandi:
1. Aðstoða framkvæmdastjórn ESB við undirbúning reglna á sviði siglingaöryggis.
2. Hafa eftirlit með og tryggja að framkvæmd löggjafar um siglingaöryggi sé með eðlilegum hætti í aðildarríkjum.
3. Hafa eftirlit með flokkunarfélögum og starfsemi hafnarríkiseftirlits.
4. Safna tölfræðilegum upplýsingum um siglingaöryggi og koma upp gagnagrunnum á því sviði.
Stofnuninni verður auk þess falið að beita sérfræðiþekkingu sinni í þágu rannsókna alvarlegra slysa á sjó. Þá verður henni falið að afla gagna um siglingaöryggi og mengun frá skipum.
Í reglugerð Evrópusambandsins er jafnframt mælt fyrir um að starfsmenn Siglingaöryggisstofnunar Evrópu skuli hafa eftirlit með fyrirkomulagi siglingaöryggis og mengunarverndar með því að heimsækja aðildarríki stofnunarinnar. Þar sem Siglingastofnun Íslands mun annast samstarf við Siglingaöryggisstofnun fyrir hönd Íslands er lagt til að bæta þessum tölulið við verkefnalista hennar í lögum.
Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. samgn.