Staða almannavarna

Fimmtudaginn 06. febrúar 2003, kl. 10:43:53 (3518)

2003-02-06 10:43:53# 128. lþ. 74.91 fundur 409#B staða almannavarna# (aths. um störf þingsins), KF
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur, 128. lþ.

[10:43]

Katrín Fjeldsted:

Herra forseti. Ég lýsi furðu minni yfir þessu upphlaupi yfir máli sem er í allshn. og vil taka undir það sem síðasti ræðumaður sagði. Málið er til umfjöllunar í nefndinni og þar verður gengið frá því.

Það er hins vegar alveg rétt að stofnunin Almannavarnir ríkisins er í vissi óvissu. Hæstv. dómsmrh. hefur hins vegar skýrt að engar breytingar hafa orðið á þeirri starfsemi. Mér finnst vafasamt að reyna að sá fræjum efasemda hjá almenningi varðandi stöðu almannavarna á Íslandi. Það er algjörlega óþarft og ráðherra hefur svarað því. Það er engin óvissa um starfsemi þessarar stofnunar.