Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins

Fimmtudaginn 06. febrúar 2003, kl. 12:14:54 (3537)

2003-02-06 12:14:54# 128. lþ. 74.4 fundur 538. mál: #A Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins# (heildarlög) frv., ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur, 128. lþ.

[12:14]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Mig langaði aðeins vegna yfirferðar hæstv. ráðherra um réttindamálin og hvaða stuðning foreldrar fá sem eiga fötluð börn sem þurfa á þjónustu að halda á höfuðborgarsvæðinu að spyrja hæstv. ráðherra hvað liði því að lengja réttindi foreldra langveikra og fatlaðra barna til fjarvista frá vinnu en sá þáttur málsins heyrir einmitt undir hæstv. ráðherra, hvort hann gæti svarað einhverju um það þar sem verið var að kalla eftir frumvörpum og tillögum sem hafa verið lagðar til til úrbóta.