Halldór Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Mér þótti það fróðlegt hjá hv. 6. þm. Suðurl., Lúðvíki Bergvinssyni, að það væri kallað að uppnefna menn í Samfylkingunni að vera flokkaflakkarar. Ég hélt nú satt að segja að það væri frekar regla en undantekning að menn væru flokkaflakkarar í þeim samtökum.
Ég hlýt að láta enn í ljós undrun mína yfir því að þessi hv. þm. og yfirleitt þeir þingmenn Samfylkingarinnar sem hér hafa tekið til máls skuli ekki reyna að hafa djörfung og dug til þess að útskýra hvað þeir meina. Búið er að auglýsa mjög þessa tillögu og þessar umræður Samfylkingarinnar. Það er verið að reyna að slá þessu upp (Gripið fram í: Nú.) víðs vegar um landið af samfylkingarmönnum, að hv. þm. Kristján Möller hafi unnið mikið rannsóknarstarf og á þeim grundvelli hefur formaður Samfylkingarinnar komið hér í ræðustól og sagt að við skulum hafa þungaskattinn mismunandi háan eftir því hvar bílnum er ekið á landinu, eftir því hvort bílnum er ekið um Múlasýslur, Ísafjarðarsýslur, Reykjavík eða Borgarfjörð.
Hvernig stendur á því að hv. þm. vill ekki leysa þá gátu og skýra frá því hvaða hugmyndir Samfylkingin hefur um þetta? Hv. þm. er flutningsmaður að tillögunni. Er þetta bara loft? --- Ég sé að 1. flm. málsins, hv. þm. Kristján Möller, er farinn að gefa hv. þm. Lúðvíki Bergvinssyni ráð svo það eru um þessar mundir tveir fundir hér í þingsalnum. Og er þá við því að búast að hv. þm. Lúðvík Bergvinsson geti komið hér upp eftir þetta hljóðskraf við hv. þm. Kristján Möller, og skýrt frá því hvernig mörkin eru?
Aðalatriðið er að Samfylkingin reyni að útskýra hvað fyrir henni vakir. Og ég er að hjálpa Samfylkingunni með því að knýja á um það að hún skýri frá því hvað hún vilji. (Gripið fram í.)