Lúðvík Bergvinsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Nú sem endranær er ekki nokkur leið að skilja hv. þm. Halldór Blöndal þegar hann er hér í ræðustól. Það er nú þrautin þyngri, virðulegi forseti, að reyna að taka þátt í andsvörum við hv. þm., enda er ekki nokkur leið að átta sig á því á hvaða vegferð hv. þm. er, ekki nokkur leið.
Ég fór yfir það að hv. þm. Kristján Möller er búinn að fara í verulegar rannsóknir og sýnir fram á það í tillögu sinni að lífskjör á landsbyggðinni eru síðri en á höfuðborgarsvæðinu að því er varðar verðlagningu á vörum og ýmsu öðru. Þetta hefur hann dregið skýrt fram.
Og hvernig bregðumst við við? Við bregðumst við með því að lýsa því yfir að við viljum leggja því lið að breyta þessu, og það segir í þessari tillögu að við lýsum því yfir að við munum styðja við aðgerðir sem geta jafnað lífskjör á landsbyggðinni. Við segjum það líka --- og hefðum sjálfsagt lagt það fram mjög skilmerkilega ef við hefðum útfært þessar hugmyndir nákvæmlega. Þetta er mjög einfalt og þetta er mjög skýrt.
En hér kemur hv. þm. Halldór Blöndal aftur og aftur í ljósi þeirrar staðreyndar að núverandi ríkisstjórn hefur ekki gert nokkurn skapaðan hlut. En enn og aftur kemur hv. þm. og kallar eftir hugmyndum frá okkur. Og það er kannski ekki nema von því að ríkisstjórnin hefur ekki gert nokkurn skapaðan hlut í að reyna að jafna lífskjör á landsbyggðinni miðað við það sem er á höfuðborgarsvæðinu að því er þessa þætti varðar. Það er ekki nema von að hv. þm. skammist sín og komi síðan hér upp í þessa umræðu með þetta málefnalega innlegg sem hann flutti áðan.