Brot á reglugerð um grásleppuveiðar

Mánudaginn 10. febrúar 2003, kl. 15:29:17 (3658)

2003-02-10 15:29:17# 128. lþ. 75.1 fundur 417#B brot á reglugerð um grásleppuveiðar# (óundirbúin fsp.), sjútvrh.
[prenta uppsett í dálka] 75. fundur, 128. lþ.

[15:29]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen):

Herra forseti. Það á auðvitað að fara eftir öllum reglugerðum sem settar eru. Ég hef sjálfur ekki neinar upplýsingar um það mál sem hv. þm. nefndi hér en ég þakka honum fyrir að vekja athygli mína á því og mun grennslast fyrir um það hjá Fiskistofu hvernig á þessu standi.