Frsm. meiri hluta samgn. (Hjálmar Árnason) (andsvar):
Herra forseti. Aðeins örstutt. Það er rétt að árétta enn einu sinni að verði frv. að lögum getur skip sem er flaggað út í fyrsta lagi fært verkefni til íslenskra sjómanna. Í annan stað er rétt að muna að strax og því verkefni er lokið og skipið kemur aftur til þess að sinna veiðiheimildum sínum hér innan íslenskrar lögsögu þá gilda íslensk lög, íslenskir kjarasamningar og allt sem því fylgir. Þar er engin breyting á. Það er engin breyting á hvað varðar þau verkefni sem skipin hafa í dag innan íslenskrar lögsögu, nákvæmlega engin breyting á því.
Ótti manna hefur verið sá að fari skip út og ráði hugsanlega erlendar áhafnir, sem auðvitað kann að verða, þá fylgi þær áhafnir til baka aftur. Þetta frv. hefur ekkert með það að gera og stuðla að því frekar en er í dag. Íslensk lög munu gilda um skipin jafnskjótt og þau eru komin í íslenska efnahagslögsögu, jafnvel um leið og þau missa þurrleigusamninginn.