Tilkynning um dagskrá

Fimmtudaginn 13. febrúar 2003, kl. 10:30:55 (3794)

2003-02-13 10:30:55# 128. lþ. 79.92 fundur 430#B tilkynning um dagskrá#, Forseti ÍGP
[prenta uppsett í dálka] 79. fundur, 128. lþ.

[10:30]

Forseti (Ísólfur Gylfi Pálmason):

Áður en gengið er til dagskrár fara fram tvær umræður utan dagskrár, hin fyrri um skýrslu nefndar um flutningskostnað. Málshefjandi er hv. þm. Jón Bjarnason. Hæstv. samgrh. Sturla Böðvarsson verður til andsvara.

Hin síðari hefst kl. 11 um flugvallarskatta. Málshefjandi er hv. þm. Lúðvík Bergvinsson. Hæstv. samgrh. Sturla Böðvarsson verður til andsvara. Umræðurnar fara fram skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapa og standa í hálfa klukkustund.