Notkun hagrænna stjórntækja við umhverfisvernd

Fimmtudaginn 13. febrúar 2003, kl. 17:09:38 (3874)

2003-02-13 17:09:38# 128. lþ. 79.15 fundur 374. mál: #A notkun hagrænna stjórntækja við umhverfisvernd# þál., Flm. ÞSveinb (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 79. fundur, 128. lþ.

[17:09]

Flm. (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um aukna notkun hagrænna stjórntækja við umhverfisvernd. Flutningsmenn ásamt mér eru hv. þingmenn Samfylkingarinnar Össur Skarphéðinsson, Jóhann Ársælsson, Svanfríður Jónasdóttir, Sigríður Jóhannesdóttir og Karl V. Matthíasson.

Í tillögugreininni segir:

,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd sérfræðinga til þess að gera tillögu að heildarstefnu um notkun hagrænna stjórntækja við umhverfisvernd. Stjórnmálaflokkar sem sæti eiga á Alþingi tilnefni einn mann hver, Umhverfisstofnun Háskóla Íslands tilnefni einn fulltrúa, náttúruverndarsamtök einn fulltrúa, Samtök atvinnulífsins einn og umhverfisráðherra einn fulltrúa, sem er jafnframt formaður nefndarinnar. Nefndin skili niðurstöðum sínum í skýrslu til Alþingis.``

Á undanförnum áratugum hefur notkun hagrænna stjórntækja við umhverfisvernd farið vaxandi, m.a. innan OECD-landanna. Á landsfundi Samfylkingarinnar árið 2001 var samþykkt að beita þyrfti hagrænum stjórntækjum, svo sem umhverfisgjöldum og skilagjöldum, í ríkari mæli til þess að vernda umhverfi og í því sambandi lagðar auknar skyldur á framleiðendur og seljendur að taka við umbúðum, varningi og tækjum sem neytendur þurfa að losa sig við. Notkun hagrænna stjórntækja við umhverfisvernd tengist beint framfylgd mengunarbótareglunnar svokölluðu sem er ein af meginreglum Ríó-yfirlýsingarinnar, en hún kveður á um að þeir sem menga skuli greiða fyrir þann skaða sem mengunin veldur.

Umhverfisgjöld hafa um nokkurt skeið verið lögð á hér á landi með það að markmiði að stuðla að betri umgengni við umhverfið. Með lögum nr. 52/1989, um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, var stigið fyrsta skrefið í þessa átt. Spilliefnagjöld voru lögleidd árið 1996 og á yfirstandandi þingi voru samþykkt lög um úrvinnslugjald.

Í stefnumörkun ríkisstjórnarinnar um sjálfbæra þróun í íslensku samfélagi til 2020, sem ber yfirskriftina Velferð til framtíðar, er á það minnt að hagræn stjórntæki séu eitt margra tækja sem nota má til að stuðla að sjálfbærri þróun og nýtingu náttúrunnar, en önnur tæki eru til dæmis gerð skipulags- og náttúruverndaráætlana og mat á umhverfisáhrifum framkvæmda. Þrátt fyrir þessa stefnumörkun er enn langt í land með að þeir hvatar séu til staðar í atvinnu- og efnahagslífi sem stuðli að sem bestri nýtingu auðlinda og umhverfisvernd. Þessi tillaga til þingsályktunar er lögð fram með það að markmiði að stjórnvöld móti stefnu um notkun hagrænna stjórntækja í umhverfismálum og grípi til viðeigandi lagabreytinga til að hrinda megi stefnunni í framkvæmd.

Umhverfisgjöld hafa það að meginmarkmiði að fella allan framleiðslukostnað, þar með talinn ytri kostnað, inn í verð tiltekinnar vöru svo að verðið endurspegli betur hinn raunverulega samfélagslega kostnað sem hlýst af framleiðslu hennar og neyslu. Markmið þeirra er einnig að stuðla að betri umgengni við umhverfið og sjálfbærri þróun með því að umbuna fólki og fyrirtækjum fyrir að ástunda umhverfisvernd og betri nýtingu náttúruauðlinda en láta þeim eftir að greiða kostnaðinn sem gera það ekki. Hafa verður að leiðarljósi að upptaka umhverfisgjalda þarf ekki nauðsynlega að auka heildarskattbyrði í þjóðfélaginu, heldur að færa byrðina yfir á þá þætti framleiðslunnar sem leiða til aukins umhverfiskostnaðar.

Umhverfisgjöldin verður að skoða sérstaklega með tilliti til áhrifa þeirra á samkeppni í framleiðslu og á markaði. Því hefur verið haldið fram að gjöld af þessu tagi geti dregið úr samkeppnishæfni atvinnulífsins en hins vegar verður að hafa í huga að framþróun atvinnulífs veltur ekki síst á þróun í anda sjálfbærrar þróunar og má með góðum rökum halda því fram að grafið sé undan stoðum atvinnulífsins þegar til langs tíma er litið sé ekki tekið tillit til umhverfiskostnaðar framleiðslunnar. Með því að auka umhverfisgjöld þannig að aðrir skattar lækki á móti má draga úr neikvæðum áhrifum á samkeppnisstöðu fyrirtækja. Í löndum sem glíma við mikið atvinnuleysi hefur því verið haldið fram að auknum umhverfisgjöldum ættu að fylgja lækkandi skattar á vinnuafl og með því mætti ná fram minni mengun og hærra atvinnustigi. Þetta er kallast tvöfaldur ávinningur.

Í stuttu máli geta umhverfisgjöld verið mjög góð leið til að fella umhverfiskostnað við framleiðslu tiltekinnar vöru inn í verðið. Í annan stað geta þau virkað sem hvati á neytendur og framleiðendur til að taka upp vistvænni neyslu og framleiðslu. Í þriðja lagi hafa umhverfisgjöld hingað til verið notuð til að auka tekjur ríkissjóðs, t.d. með skattlagningu bifreiða. Full ástæða er til þess að skoða hvernig grænar álögur geti aflað ríkissjóði tekna á kostnað annarrar skattlagningar. Umhverfisgjöld þurfa að vera hluti af heildarstefnumótun í umhverfismálum sem tekur mið af sjálfbærri þróun. Þess vegna er full ástæða til að skoða ofan í kjölinn hvernig beita megi umhverfisgjöldum á heildstæðan og samræmdan hátt hér á landi.

[17:15]

Skatta og álagningu á samgöngur, t.d. álagning bifreiða- og eldsneytisgjalda, þyrfti að endurskoða með það að markmiði að minnka útblástur og stuðla að notkun minni og sparneytnari bifreiða og í því augnamiði að stuðla að auknu öryggi vegfarenda. Sem kunnugt er hafa landflutningar með þungaflutningabifreiðum aukist gífurlega á liðnum árum og ljóst að mikil umferð vöruflutningabifreiða um þjóðvegi landsins eykur slit og kostnað við vegagerð til framtíðar. Markvissar breytingar á skattlagningu bifreiða og eldsneytis gætu haft mikil áhrif til hins betra fyrir umhverfið.

Umhverfisgjöld má hugsanlega einnig nýta til þess að minnka ágang á viðkvæmu landi, ekki síst á mestu náttúruperlum Íslands, eða standa undir kostnaði við þjónustu við ferðamenn. Að mati flutningsmanna verða gjöld af þessu tagi að hafa það skýra markmið að vernda viðkvæma náttúru með því að draga úr umferð fólks og bifreiða. Mikil umferð stórra jeppabifreiða um hálendi Íslands, jafnvel utan vega, er vaxandi vandamál, sérstaklega yfir sumartímann. Ýmsar lausnir gætu komið til greina, t.d. farartækjagjald á fjallvegum ellegar notkun ítölu eða þjónustugjalds á viðkvæmustu staðina.

Við slíka vinnu, sem hér er verið að leggja til, þ.e. að leggja drög að heildarstefnu við notkun hagrænna stjórntækja við umhverfisvernd, er rík ástæða til þess að hafa samráð við hagsmunaaðila, svo sem Samtök atvinnulífsins, Neytendasamtökin og Samtök ferðaþjónustunnar, auk þess sem stórauka þarf fræðslu til almennings um gildi umhverfisverndar í anda sjálfbærrar þróunar fyrir samfélagið allt, viðgang þess og vöxt.

Hæstv. forseti. Ég læt máli mínu lokið, en vænti þess að tillögunni verði vísað til hv. umhvn.