Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni jákvæð orð í garð frv. Það er alltaf ánægjulegt þegar þingheimur nær eins vel saman og hann virðist gera í þessu máli.
Varðandi síðan flottrollsveiðarnar sem hann nefndi er það nú þannig að flottrollið er tiltölulega nýtt veiðarfæri, a.m.k. miðað við mörg önnur sem við notum, og ef ég man rétt hannað að miklu leyti hér á íslenskum fiskimiðum. Í upphafi hefur kannski ekki verið nákvæmlega fyrirséð hvernig það yrði notað. Því er það rétt sem fram hefur komið hjá hv. þingmanni að við þurfum að fylgjast mjög vel með því hvaða áhrif veiðarnar hafa og meta þá viðbrögð okkar, bæði hvað varðar reglusetningu og auðvitað hvernig við hönnum þau tæki og tól sem við notum með veiðarfærinu til þess að koma í veg fyrir óæskileg áhrif af veiðunum.