Aukinn tollkvóti hreindýrakjöts

Þriðjudaginn 18. febrúar 2003, kl. 13:40:28 (3919)

2003-02-18 13:40:28# 128. lþ. 81.13 fundur 250. mál: #A aukinn tollkvóti hreindýrakjöts# þál., Flm. SI (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 81. fundur, 128. lþ.

[13:40]

Flm. (Sigríður Ingvarsdóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir þáltill. um aukinn tollkvóta hreindýrakjöts en ásamt mér eru flm. að tillögunni hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Ásta Möller, Árni Steinar Jóhannsson, Sigríður Jóhannesdóttir og Drífa Hjartardóttir.

Landbúnaðarráðherra hefur með stoð í 65. gr. A laga um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum sett reglugerð nr. 410/2002, um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á nautgripa-, svína-, alifugla- og hreindýrakjöti. Samkvæmt reglugerðinni er sameiginlegur tollkvóti á frystu hreindýrakjöti, dádýra-, dúfu-, fasana-, lynghænu- og strútakjöti samtals 12.000 kg og var sá kvóti boðinn út samkvæmt auglýsingu landbúnaðarráðuneytisins, sbr. 4. gr. reglugerðarinnar, vegna mikillar eftirspurnar. Fjórir aðilar buðu í tollkvóta hreindýrakjöts og varð niðurstaða útboðsins sú að ráðherra úthlutaði kvótanum til hæstbjóðanda, aðila í veitingarekstri, samkvæmt tillögum ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara, sem fékk 3.000 kg. Á síðasta ári voru umsóknir um tollkvótann mun færri svo að hann var ekki fullnýttur, einungis 10.200 kg var úthlutað, þar af 8.000 kg í hreindýrakjöti.

Ákvörðun landbúnaðarráðherra um lækkun tolls skal samkvæmt greinargerð með frumvarpi til tollalaga ráðast af því hvort nægilegt framboð sé af viðkomandi vörum á hæfilegu verði á innanlandsmarkaði. Tollhlutfall hverrar vöru skal hækka eftir því sem framboð á innlendri framleiðslu er meira en lækka að sama marki eftir því sem framboð á innlendri framleiðslu minnkar. Þau tollgjöld sem í gildi eru um almennan innflutning á hreindýrakjöti eru það há að það takmarkar möguleika til að flytja kjötið inn og vinna það hérlendis vegna mikils kostnaðar. Þá hefur framboð hér innan lands verið frekar lítið og verðið mjög hátt þannig að ekki hefur tekist að auka markaðshlutdeild á hinum almenna neytendamarkaði.

Hreindýrakjöt hefur einkum verið flutt til Íslands frá Grænlandi og er hreindýrum á Grænlandi slátrað við bestu mögulegu aðstæður, í sláturhúsi sem hefur fengið ESB-viðurkenningu til útflutnings. Um er að ræða ósýkt, stimplað úrvalskjöt sem tilvalið er að flytja inn og fullvinna hér á landi, jafnvel sem lúxusvöru fyrir erlendan markað. Þannig mundi skapast atvinna og virðisaukinn af verðmætasköpuninni við vinnsluna verða eftir í landinu. Til þess að það væri gerlegt þyrfti að lækka tolla eða jafnvel skipta upp í fleiri tollflokka eftir því hvort kjötið er með beini eða unnið. Í Noregi er tollum t.d. skipt þannig að tollur á hreindýrakjöti með beini er lægri, en hærri ef búið er að úrbeina kjötið. Á Íslandi er magntollur 960 kr./kg að viðbættum 30% verðtolli, hvort sem kjötið er með beini eða beinlaust.

Flutningsmenn telja að innflutningur á hreindýrakjöti muni ekki hafa áhrif á sölu lambakjöts, enda vörurnar ólíkar. Þá hafa vinsældir villibráðar sem hátíðarmatar aukist mjög mikið og kom það berlega í ljós í útboði ráðuneytisins að áhuginn á hreindýrakjöti er mikill, en kvótanum sem úthlutað var í þetta skiptið, einungis 3.000 kg á móti 8.000 kg á síðasta ári, var úthlutað til eins aðila í veitingahúsarekstri. Mikilvægt er að auka fjölbreytni og framboð á almenna markaðnum og eru viðbótarkvótar ætlaðir til að tryggja meira svigrúm á markaðnum til innflutnings. Með því að úthluta einungis 3.000 kg tollkvóta hefur ekki tekist að tryggja nægilegt svigrúm á hinum almenna markaði fyrir hreindýrakjöt og því nauðsynlegt að hann verði aukinn nú þegar og enn fremur að tollkvótanum verði skipt innbyrðis milli afurða, þannig að hreindýrakjöt fái sérstakan tollkvóta og dádýra-, dúfu-, fasana-, lynghænu- og strútakjöt sérstakan.

Því má reyndar bæta við að þetta var gert, held ég um síðastliðin áramót, í landbrn. svo að eftir að þessi þáltill. kom fram hefur verið brugðist við þessum tillögum. Með þessari tillögu minni er ég þó ekki síst að horfa til þess að flutt verði inn hreindýrakjöt og það unnið hér á landi til áframhaldandi útflutnings. Eins og staðan er í dag er mikið magn af hreindýrakjöti flutt frá Grænlandi til Noregs og það unnið þar en vilji er fyrir því að flytja kjötið hingað til lands og vinna það, t.d. á Húsavík. Þar hafa áhugasamir einstaklingar verið í sambandi við grænlenska aðila um að vinna kjötið á Húsavík til áframhaldandi útflutnings þaðan.

Ég legg að lokum til að þáltill. þessari verði vísað til síðari umr. og hv. landbn.