Þjónusta við aðstandendur ungra fíkniefnaneytenda

Miðvikudaginn 19. febrúar 2003, kl. 15:30:44 (4035)

2003-02-19 15:30:44# 128. lþ. 83.8 fundur 560. mál: #A þjónusta við aðstandendur ungra fíkniefnaneytenda# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., heilbrrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 83. fundur, 128. lþ.

[15:30]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Rannveig Guðmundsdóttir hefur beint til mín fyrirspurn um þjónustu við aðstandendur ungra fíkniefnaneytenda.

Fyrri spurningin er svohljóðandi, með leyfi forseta:

,,Hefur upplýsingamiðstöð fyrir aðstandendur ungra fíkniefnaneytenda verið komið á laggir við barna- og unglingageðdeild Landspítala -- háskólasjúkrahúss?``

Svarið við því er neitandi. Barna- og unglingageðdeildin hefur hins vegar einbeitt sér að unglingum með geðraskanir og sinnir fíkniefnaneytendum og aðstandendum þeirra fyrst og fremst með ráðgjöf við Stuðla og við unglingadeild SÁÁ á Vogi, en á þessum stöðum er veitt þjónusta við þá sem eiga við fíkniefnavanda að glíma.

Á barna- og unglingageðdeildinni er þó aðstandendum sjúklinga veitt margs konar ráðgjafaþjónusta þó ekki sé áform um að stofna þar upplýsingamiðstöð.

Það er einnig spurt, með leyfi forseta:

,,Hvernig er þjónustu háttað við foreldra barna og unglinga í vímuefnavanda?``

Þjónusta við þennan hóp er margvísleg. Þegar börn og unglingar lenda í vímuefnavanda er samband haft við foreldra eða forráðamenn. Á meðan á meðferð stendur eru foreldrar og forráðamenn oftast hafðir með í ráðum, en að sjálfsögðu ræðst sú samvinna af mörgu, m.a. aldri ungmennis og eins félagslegum aðstæðum.

Á Vogi er eins og kunnugt er rekin mikil þjónusta við þennan hóp barna og unglinga. Þar er haldið saman upplýsingum um eðli og umfang þjónustunnar og er gerð ítarleg grein fyrir þessu á heimasíðu SÁÁ.

Þá standa aðstandendum neytenda sem ekki eru í meðferð ýmis ráð til boða. Fjölskyldumiðstöð veitir fjölskyldum í ýmsum vanda ráðgjöf. Hér getur verið um að ræða samskiptavanda, skilnaðar- og forsjármál, vímuefnaneyslu, hegðunar- og þroskavanda barna, vanda vegna þverrandi áhuga barna á námi og vegna barna sem sýna andfélagslega hegðun af einhverju tagi, svo nokkur dæmi séu tekin. Þessi ráðgjöf er endurgjaldslaus.

Fjölskyldumiðstöðin er samstarfsverkefni Reykjavíkurdeildar Rauða krossins, félagsmálaráðuneytisins, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og Félagsþjónustunnar í Reykjavík. Árið 2002 komu 209 fjölskyldur á Fjölskyldumiðstöð. Það er um 4% fjölgun mála frá árinu 2001. Ráðgjafar Fjölskyldumiðstöðvar veittu 791 viðtal, en þau voru 457 árið 2001. Það er aukning um 73%.

Samkvæmt upplýsingum frá foreldrasamtökum Vímulausrar æsku voru foreldrum barna og unglinga í vímuefnavanda veitt um 1.300 viðtöl árið 2002. Þar sem foreldrar hvers barns koma yfirleitt tvisvar til þrisvar í viðtal má áætla að foreldrar 500 barna hafi notið þar aðstoðar.

Hjá Vímulausri æsku starfar einn sálfræðingur í fullu starfi við ráðgjöf og félagsráðgjafi og tveir foreldrar sem starfa hjá samtökunum veita einnig viðtöl. Viðtal hjá sálfræðingi kostar 500 kr. fyrir hvert skipti, en þjónusta hinna er endurgjaldslaus.

Tekjur Vímulausrar æsku árið 2001 voru 13,6 millj. kr. Af þeim komu 7,8 milljónir úr ríkissjóði.

Fyrir utan þá þjónustu sem Fjölskyldumiðstöð og Vímulaus æska veita standa eftirtalin ráðgjafarúrræði öllum til boða, og hjá þeim er þekking fyrir hendi um hvar hægt er að fá nánari þjónustu: Fjölskylduþjónusta þjóðkirkjunnar, Hitt húsið í Reykjavík, SÁÁ, Stígamót, Rauðakrosshúsið, trúnaðarsími þess, Félagsþjónusta sveitarfélaga, hverfaskrifstofur í Reykjavík, heilsugæslustöðvar um allt land, námsráðgjafar, skólahjúkrunarfræðingar, prestar og lögregla.

Virðulegi forseti. Það er ljóst að margvísleg þjónusta stendur aðstandendum ungra fíkniefnaneytenda til boða þó vissulega mætti gera betur í því efni. Þessi þjónusta er án endurgjalds fyrir þá sem notfæra sér hana og er það val aðstandenda þeirra hvort þeir færa sér í nyt þau tilboð um þjónustu sem ég hef hér lýst.