Geðheilbrigðisþjónusta fyrir börn og unglinga

Miðvikudaginn 26. febrúar 2003, kl. 10:37:13 (4043)

2003-02-26 10:37:13# 128. lþ. 84.91 fundur 442#B geðheilbrigðisþjónusta fyrir börn og unglinga# (aths. um störf þingsins), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 84. fundur, 128. lþ.

[10:37]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég vil af þessu tilefni taka fram að það er rétt sem hv. þm. segir, borist hafði beiðni um utandagskrárumræðu um þetta efni en áður hafði borist fyrirspurn frá hv. 3. þm. Norðurl. e., Steingrími J. Sigfússyni, til heilbrrh. um geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga. Að sjálfsögðu er ekki efni til utandagskrárumræðu þegar þingmaður hefur áður lagt fram fyrirspurn um sama efni.