Frsm. meiri hluta iðnn. (Hjálmar Árnason) (andsvar):
Herra forseti. Það kemur mér ekki á óvart að maður sem dagfarslega er afskaplega lífsglaður skuli, þegar hann kemur hér í ræðustól og fjallar um atvinnumál og möguleika til að skapa atvinnu, vera heldur dapur. Enda byrjaði hv. þm. sína ræðu á að það væri dapurlegt að hlýða á. (Gripið fram í.)
Hv. þm. Ögmundi Jónassyni finnst málið dapurlegt og er þar í bullandi ágreiningi við ASÍ, í bullandi ágreiningi við öll helstu samtök atvinnulífsins sem fagna þessu og gleðjast með okkur öðrum sem styðjum þetta frv. Það skapar aukin verðmæti fyrir þjóðarbúið og hundruð starfa fyrir þjóð sem nú er að glíma við atvinnuleysi. Hv. þm. á erfitt með að gleðjast yfir þeim tækifærum en kemur, eins og yfirleitt þegar hér er verið að fjalla um möguleika til að byggja upp atvinnu, dapur í bragði.
Ég harma það. En hv. þm. verður að fara að skilja að störfin verða ekki til, þeim rignir ekki af himnum ofan. Það þarf að fjárfesta í atvinnulífi. Menn þurfa að sækja fram í atvinnulífinu til að skapa störf og færa frekari stoðir undir velferðarkerfið. Það þarf að auka verðmætin, m.a. svo að hægt sé að borga starfandi fólki laun og líka til þess að borga opinberum starfsmönnum laun. Verðmætin verða ekki til úr engu. Ekkert verður til úr engu.
Hvað varðar fyrirspurn hv. þm. þá hefur hv. þm. óskað eftir því á fundi í efh.- og viðskn. að fá upplýsingar. Ég sat á þeim fundi með honum og við bíðum eftir svörum. En það hefur komið fram hjá hæstv. iðnrh. að við vinnu á þessu máli hefur ESA verið upplýst um ferlið. Þetta er nokkuð sambærilegt við Norðurál en við bíðum eftir niðurstöðum og kvíðum engu.