Kolbrún Halldórsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Það er nauðsynlegt að benda hv. þm. á að hópar fólks hafa komið saman víða á landinu, m.a. á Akureyri og við Lagarfljót, til að mótmæla þeirri fásinnu sem hér er í uppsiglingu. Hv. þm. telur umhverfisverndarsinna skorta raunveruleikatengingu. Ég vísa þeim ummælum að sjálfsögðu til föðurhúsanna. Hverjir eru það í raun og veru sem hafa enga raunveruleikatengingu í þessu máli? Eru það ekki þeir sem keyra með handafli í gegn verkið sem hér hefur verið gagnrýnt í allan dag, t.d. út frá forsendum efnahagsmálanna og forsendum þeirra gífurlegu fjármuna sem fara í þetta?
Ég ræddi um það í ræðu minni að það væru sennilega 5--6 milljarðar sem farið hefði í undirbúning Kárahnjúkavirkjunar þegar Fljótsdalsvirkjun er talin með. Hvar stæði austfirskt atvinnulíf í dag ef þeir 5--6 milljarðar hefðu verið settir í öfluga atvinnuuppbyggingu sem hentaði fólki sem býr fyrir austan en ekki einhverja útópíska stóriðjuhugmynd sem hefur búið um sig í hjarta og maga formanns Framsfl. í 20 ár?