Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þm. Láru Margréti Ragnarsdóttur að það er ögurstund í alþjóðasamskiptum og hættulegir tímar. En ég veit ekki hvort ég hef skilið ræðu þingmannsins rétt. Hún lagði mikla áherslu á að varast beri of mikla undanlátssemi og að sýna verði staðfestu þegar á reynir, og ég gat ekki betur heyrt en að þingmaðurinn væri á því að nóg væri komið af því að gefa nýja fresti.
Metur þingmaðurinn það svo að við séum að verða komin á enda og að eftir viku, þegar við fáum nýja skýrslu, þá beri að líta svo á að nóg sé reynt? Eða lítur þingmaðurinn svo á að full ástæða sé til --- ef vopnaeftirlitssveitin telur að það eigi enn að gefa tíma fyrir frekari leit og ef það verður skoðun Hans Blix, eins og var núna þegar skýrsla var gefin síðast, hann sagði afdráttarlaust að það ætti gefa leitinni meiri tíma, telur þá þingmaðurinn að það ætti ekki að fara að því? Ég veit ekki hvort ég skildi þingmanninn rétt en hún talaði mjög svo þannig að skilja mátti að frekari undanlátssemi væri af hinu verra og að nú þyrftu bara aðgerðir að tala sínu máli.