Upplýsingaskylda um launakjör

Mánudaginn 03. mars 2003, kl. 15:13:36 (4249)

2003-03-03 15:13:36# 128. lþ. 86.1 fundur 453#B upplýsingaskylda um launakjör# (óundirbúin fsp.), JóhS
[prenta uppsett í dálka] 86. fundur, 128. lþ.

[15:13]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því sjálfstæði sem Fjármálaeftirlitið á að hafa eðli máls samkvæmt. Lögum samkvæmt heyrir Fjármálaeftirlitið þó undir viðskrh. og það sem ég var að leita eftir við hæstv. ráðherra var hvort hún mundi beina þessum tilmælum til Fjármálaeftirlitsins en það tel ég að hæstv. ráðherra hafi fulla heimild til og lít svo á, samkvæmt orðum ráðherrans áðan, að hún muni gera það.