Upphæð atvinnuleysisbóta

Mánudaginn 03. mars 2003, kl. 15:20:43 (4255)

2003-03-03 15:20:43# 128. lþ. 86.1 fundur 454#B upphæð atvinnuleysisbóta# (óundirbúin fsp.), félmrh.
[prenta uppsett í dálka] 86. fundur, 128. lþ.

[15:20]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Þó að það komi ekki þessu máli við, þá stóð ég ekki að þessari tillögugerð á flokksþingi framsóknarmanna og greiddi henni ekki atkvæði. En á hinn bóginn get ég svarað því til að ég mundi skrimta einhverja mánuði á atvinnuleysisbótum ef og þegar ég missi vinnuna. En ég mundi ekki hafa löngun til þess að vera á þeim lengi.