Jón Bjarnason:
Herra forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um það hvort þessar risaframkvæmdir á Austurlandi, Kárahnjúkavirkjun ásamt Fjarðaáli, skuli fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hér eru fyrirhuguð stærstu inngrip í íslenska náttúru. Þetta er sömuleiðis stærsta dæmi efnahagslega inn í íslenskt efnahagslíf á skömmum tíma.
Engir skuldbindandi samningar hafa verið gerðir með þeim hætti að ekki megi afturkalla þá. Því er alveg sjálfsögð og eðlileg krafa að þjóðin fái tækifæri til þess að greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta stærsta mál síðustu áratuga. Ég segi já.