Svanfríður Jónasdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég vil byrja á að taka undir það að viðhorfin hafa sannarlega breyst. Ég þykist þess nokkuð fullviss að þegar menn voru að andmæla hér álveri í Straumsvík á sjöunda áratugnum þá voru þeir hræddastir við hinn erlenda auðhring, hina erlendu peninga. Nú hefur áherslan færst yfir á umhverfismálin. Ég held að það séu stærstu breytingarnar sem hafa orðið á viðhorfum fólks.
Ég óskaði eftir því að hæstv. ráðherra svaraði varðandi þau ákvæði sem eru í 3. gr., þ.e á hverju þau byggðu. Er búið að gera samning? Liggur eitthvað bindandi fyrir? Liggur orkuverð fyrir? Mér finnst mjög mikilvægt að þetta komi fram.
Í öðru lagi vil ég að gefnu tilefni spyrja um Eftirlitsstofnun EFTA, ESA og hvernig málum er háttað gagnvart henni. Nú geri ég ráð fyrir því að sá styrkur sem fram kemur af hálfu yfirvalda í þessu frv. þurfi ekki síður en varðandi Fjarðaál að fara fyrir ESA til skoðunar.
Í þriðja lagi vil ég lesa upp fyrir hæstv. ráðherra hvernig greinin hljóðar, e-liður 3. gr. Hér stendur, með leyfi forseta:
,,... nema slíkir skattar og gjöld séu lögð með almennum hætti á öll önnur fyrirtæki hér á landi, þar með talin álfyrirtæki.``
Þetta er texti frv. Í skýringum við greinina segir síðan, með leyfi forseta :
,,Af hálfu viðsemjanda ríkisstjórnarinnar er talið mikilvægt að jafnræðis verði gætt við álagningu slíkra skatta eða gjalda ef til þess kemur.``
Þá vil ég spyrja: Lítur ráðherra svo á að hv. iðnn. geti komið með brtt. varðandi þetta ákvæði þannig að jafnræði sé tryggt?