Álbræðsla á Grundartanga

Fimmtudaginn 06. mars 2003, kl. 18:06:19 (4520)

2003-03-06 18:06:19# 128. lþ. 90.4 fundur 671. mál: #A álbræðsla á Grundartanga# (stækkun, skattlagning) frv. 85/2003, iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 90. fundur, 128. lþ.

[18:06]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er nú mikið talað um jafnræði og að jafnræði þurfi að gilda. Í þessu tilfelli er um sama texta að ræða og í þeim lögum sem sett voru í gær og varða Fjarðaál (Gripið fram í.) og það var líka gagnrýnt af hálfu þingmanna Samfylkingarinnar. Alla vega í þessu tilfelli er verið að tala um að jafnræði ríki á milli þessara tveggja álfyrirtækja.