Lúðvík Bergvinsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vil segja þetta: Það vildi ég að sú ræða sem ég flutti áðan og þau viðvörunarorð sem ég flutti hefðu verið í einhvers konar kappræðuformi. Að málið væri ekki alvarlegra en svo að þetta væri einhvers konar kappræðustíll þegar hæstv. samgrh. kemur hingað í ræðustól og heldur því fram að það sé rétt að tefla byggðunum saman á þann hátt sem hæstv. ráðherra gerir ráð fyrir.
Ég held að ekki þurfi að rekja það í þessum sal og við þá þingmenn sem hér sitja hver þróunin hefur verið í íslenskum sjávarútvegi að því er varðar fiskveiðar. Ég held að ekki þurfi að rekja í þessum sal þá þróun sem hefur átt sér stað með fækkun skipa víða um landið, þ.e. fækkun viðskiptavina hafnanna. Og í þessu frv. kemur skýrlega fram og ég ætla að leyfa mér, virðulegi forseti, að lesa úr áliti frá fjármálaráðuneytinu, en þar segir, með leyfi forseta:
,,Heildaráhrifin af frumvarpinu eru að útgjöld ríkissjóðs miðað við núverandi hafnaáætlun lækka um 1.000 millj. kr. miðað við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2003.``
Um þetta vil ég aðeins segja, virðulegi forseti, að það er algerlega fráleitt að þessi lækkun á framlögum til hafnanna muni leiða til þess að hafnir víðs vegar um landið muni styrkjast. Þetta er alveg fráleit röksemdafærsla, enda, virðulegi forseti, þegar málið kom fyrir í fyrra, fyrir ári, þá lögðust nánast allir sem komu fyrir nefndina gegn þessu máli. Nánast allir. Það hefur ekki orðið sú breyting á því, virðulegi forseti, að reikna megi með öðrum móttökum.
Því segi ég það, virðulegi forseti, að ég hvet hæstv. ráðherra eindregið til að hverfa frá þessum fyrirætlunum sínum.