Vátryggingastarfsemi

Mánudaginn 10. mars 2003, kl. 10:50:30 (4572)

2003-03-10 10:50:30# 128. lþ. 93.16 fundur 568. mál: #A vátryggingastarfsemi# (EES-reglur) frv. 34/2003, Frsm. EKG
[prenta uppsett í dálka] 93. fundur, 128. lþ.

[10:50]

Frsm. efh.- og viðskn. (Einar K. Guðfinnsson):

Virðulegi forseti. Hér er um að ræða nál. sem fylgir frv. til laga um breyting á lögum um vátryggingastarfsemi, nr. 60/1994, með síðari breytingum, og brtt. sem kunngerðar eru á sérstöku þingskjali.

Með þessu frv. er lagt til að innleitt verði í íslenskan rétt efni tilskipunar Evrópusambandsins um endurskipulagningu og slit vátryggingafélaga í þeim tilgangi að tryggja gagnkvæma viðurkenningu á aðgerðum aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins og samvinnu varðandi endurskipulagningu fjárhags vátryggingafélaga og slit þeirra og ákveðna lágmarkssamræmingu landsreglna sem gilda um þessi atriði.

Við umfjöllun nefndarinnar komu fram nokkrar athugasemdir við efni frv. frá réttarfarsnefnd. Réttarfarsnefndin gerði fyrst og fremst athugasemdir við einstök efnisatriði en einnig við uppbyggingu og aðferðafræði við gerð frv. Efh.- og viðskn. leggur til allnokkrar breytingar sem koma til móts við þær athugasemdir sem réttarfarsnefnd gerði og í áliti réttarfarsnefndar, hinu síðara, kom fram að breytingarnar væru allar til bóta og kæmu til móts við sjónarmið þeirrar nefndar.

Athugasemdirnar lutu einkum að því að óvarlegt væri að vísa til þess að íslensk lög eða dómar giltu um starfsemi sem fram færi erlendis. Breytingar nefndarinnar lúta að því að nægjanlegt sé að lögfesta ákvæði sem fela í sér að úrskurður dómstóls eða reglur í öðru aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins taki til útibús vátryggingafélags hér á landi. Með vísan til efnis tilskipunarinnar sem verið er að innleiða og þess að hún hefur öðlast gildi á öllu Evrópska efnahagssvæðinu uppfyllir Ísland skyldu sína samkvæmt tilskipuninni með þessum hætti. Gera verður ráð fyrir að sams konar viðurkenning og hér er veitt komi til í öðrum ríkjum svæðisins gagnvart íslenskum lögum og dómum.

Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali og vísar því jafnframt til viðskrn. að einstakar athugasemdir réttarfarsnefndar verði skoðaðar gaumgæfilega í samstarfi við réttarfarsnefnd og frekari lagfæringar lagðar til ef nauðsynlegt er talið strax næsta haust.

Hv. þm. Hjálmar Árnason og Össur Skarphéðinsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en undir nál. rita aðrir þingmenn úr efh.- og viðskn.: hv. þm. Einar K. Guðfinnsson, formaður og frsm., Kristinn H. Gunnarsson, Árni Ragnar Árnason, Gunnar Birgisson, Adolf H. Berndsen, Jóhanna Sigurðardóttir og Ögmundur Jónasson.