Eftirlit með skipum

Mánudaginn 10. mars 2003, kl. 12:06:13 (4592)

2003-03-10 12:06:13# 128. lþ. 93.29 fundur 360. mál: #A eftirlit með skipum# (heildarlög, EES-reglur) frv. 47/2003, Frsm. HjÁ
[prenta uppsett í dálka] 93. fundur, 128. lþ.

[12:06]

Frsm. samgn. (Hjálmar Árnason):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. samgn. um frv. til laga um eftirlit með skipum.

Eftir ítarlega umfjöllun, marga gesti og umsagnir hefur nefndin komist að niðurstöðu, en umsagnaraðilar og gestir eru nefndir á þskj. 998.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lagareglum um skoðunarferli skipa. Breytingarnar eiga rót sína að rekja til nýrra EES-gerða samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og alþjóðasamþykkta á þessu sviði.

Eftir hina miklu yfirlegu nefndarinnar leggur hún til að frv. verði samþykkt en þó með nokkrum breytingu sem raktar eru á þskj. 1000. Þessar breytingar eru helstar:

1. Lagt er til að í stað þess að vísa til orðalagsins ,,mengun sjávar`` í 1., 3. og 11. gr. skuli vísað til mengunar frá skipum. Breytingin felur í sér að við eftirlit með skipum skuli gætt að hvers konar mengun frá skipum, þar með talinni loftmengun. Jafnframt eru lagðar til breytingar á 12. og 18. gr. frumvarpsins sem eru í þessum anda.

2. Lögð er til breyting á 1. málsl. 1. mgr. 9. gr. þess efnis að skipstjóra verði einum gert skylt að sjá til þess að skip sé haffært þegar það leggur úr höfn og hafi gild lögboðin skírteini um borð. Samkvæmt frumvarpinu er þessi ábyrgð jafnframt lögð á útgerðarmann. Ýmis vandkvæði fylgja því og má benda á að engan veginn er öruggt að útgerðarmaður hafi þá kunnáttu eða menntun sem þarf til að leggja mat á haffæri skips, auk þess sem útgerðarmenn eru alls ekki alltaf til staðar þegar skip leggur úr höfn sem er forsenda fyrir því að þeim sé unnt að rækja skyldur sínar samkvæmt ákvæðinu og þess vegna gerir nefndin þessa breytingu.

3. Lagt er til að skýrar verði kveðið á um rétt Landhelgisgæslunnar til að framkvæma skyndiskoðanir samkvæmt lögunum. Í núgildandi lögum er réttur til skyndiskoðana jafnt í höndum Siglingastofnunar og Landhelgisgæslunnar og gera þessar stofnanir með sér samstarfssamning um framkvæmd þeirra. Lagt er til að sú skipan mála verði óbreytt, enda hefur hún reynst vel samkvæmt upplýsingum nefndarinnar.

4. Samkvæmt 4. tölul. 13. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir að hver sem er geti sett fram kröfu um að aukaskoðun fari fram á skipi. Aukaskoðanir hafa í för með sér mikinn kostnað fyrir útgerð og því má telja varhugavert að veita aðilum sem engra hagsmuna eiga að gæta heimild til að setja fram slíka kröfu. Nefndin leggur af þessum ástæðum til að þessi heimild verði bundin við tiltekna aðila, eins og að öðru leyti er gert í greininni, en jafnframt verði stjórn stéttarfélags veitt slík heimild. Þessi breyting er í samræmi við núgildandi lög um eftirlit með skipum. Þá er jafnframt lögð til breyting á síðari málslið 4. tölul. greinarinnar þannig að almennt verði óheimilt að veita upplýsingar um það hver hafi lagt fram kröfu um aukaskoðun, en þó með þeirri undantekningu að útgerð eigi rétt á þeim upplýsingum hafi krafa eða kvörtun reynst ástæðulaus. Breytingin er í samræmi við ákvæði núgildandi laga um eftirlit með skipum.

5. Lögð er til breyting á ákvæði 1. mgr. 25. gr. sem fjallar um verkefni farbannsnefndar. Lagt er til að 2. tölul. greinarinnar falli brott, enda hefur hann ekki þýðingu eftir að efnisákvæði 14. gr. gildandi laga hefur verið fellt úr gildi. Þá liggur fyrir að verkefni farbannsnefndar eru eingöngu að úrskurða um gildi farbanns sem þegar hefur verið lagt á og því er lagt til að miða orðalag 1. mgr. við það.

6. Lagt er til að lögin öðlist gildi 1. janúar 2004. Heppilegt þykir að miða gildistökuna við áramót vegna framkvæmdar laganna.

Undir nál. rita eftirtaldir hv. þingmenn: Hjálmar Árnason, Magnús Stefánsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Sigríður Ingvarsdóttir, Arnbjörg Sveinsdóttir, Lúðvík Bergvinsson og Jón Bjarnason.

Hv. þingmenn Kristján L. Möller og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem hér hefur verið gerð grein fyrir.