Kjaradómur og kjaranefnd

Mánudaginn 10. mars 2003, kl. 15:09:12 (4611)

2003-03-10 15:09:12# 128. lþ. 93.42 fundur 683. mál: #A Kjaradómur og kjaranefnd# (heilsugæslulæknar) frv. 71/2003, heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 93. fundur, 128. lþ.

[15:09]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins láta það koma fram við þessa umræðu að þetta frv. er flutt í fullkomnu samráði við heilbrrn. Ég styð það eindregið en það er lagt fram í framhaldi af erindi heimilislækna til heilbrrh. um að skipta um viðsemjanda samkvæmt viljayfirlýsingu sem ég gaf út fyrir áramótin. Ég vildi aðeins láta það koma fram að við fjmrh. höfum rætt efni þessa frv. og að ég sem heilbrrh. styð það eindregið.