Framhald þingfundar

Mánudaginn 10. mars 2003, kl. 23:53:42 (4674)

2003-03-10 23:53:42# 128. lþ. 94.93 fundur 483#B framhald þingfundar# (um fundarstjórn), ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 94. fundur, 128. lþ.

[23:53]

Ögmundur Jónasson:

Herra forseti. Við höfum sýnt góðan samningsvilja í dag og reynt að hraða afgreiðslu mála. Það verður engin breyting á því. Við viljum gott samstarf um þinglokin. Það mun ekki standa á okkur ef stjórnin og stjórnarflokkarnir sýna samningsvilja. Hér er hins vegar svo komið að það þarf að ræða við okkur um málið. Við látum ekki bjóða okkur svona vinnubrögð.

Ég geri það að tillögu minni að gert verði hlé á þingfundinum og við ræðum um hvernig við ætlum að haga því sem eftir er af þessum þingfundi, hvenær við ætlum að ljúka fundinum.