Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (andsvar):
Herra forseti. Eins og ég gat um áðan er stöðugt verið að vinna að þessum öryggisaðgerðum. Hvort sparnaður vegna minni snjómoksturs gæti leitt til þess að þær mætti auka get ég ekki svarað á þessari stundu. En á eitt er að líta í þessu sambandi, þjónustan á þjóðvegunum hefur verið að aukast mjög mikið, þar á meðal vetrarþjónustan. Ástæðan fyrir því að þessi þjónusta hefur aukist svo mjög er m.a. að verktakar og þeir sem á vegum Vegagerðarinnar vinna að þessari vetrarþjónustu eru að allan veturinn og þetta er meira og minna fastur kostnaður. Það er því tiltölulega lítil viðbót sem er um að ræða nema í alveg sérstaklega hörðum vetri sem sparast þá þegar minni snjór er. Ég vil bara vara menn við því og segi að þetta eru ekki stórar fjárhæðir vegna þess að þetta er langmest fastur kostnaður. Engu að síður, eitthvað sparast og það kemur þá til góða, annaðhvort til að greiða upp skuldir frá fyrri tíð, í einhverjum tilvikum er það svo, eða þá að það nýtist til endurbóta á vegakerfinu og að sjálfsögðu tek ég undir það með hv. þingmanni að m.a. þarf að huga að því að nýta þá fjármuni til þess að setja upp leiðara og bæta aðkomu að brúm og öðrum þvílíkum hlutum sem er afar mikilvægt að huga að.