Reynslulausn

Þriðjudaginn 11. mars 2003, kl. 20:47:29 (4784)

2003-03-11 20:47:29# 128. lþ. 96.22 fundur 517. mál: #A reynslulausn# þál. 21/128, Frsm. ÞKG
[prenta uppsett í dálka] 96. fundur, 128. lþ.

[20:47]

Frsm. allshn. (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. frá hv. allshn. um till. til þál. um reynslulausn.

Með tillögunni er lagt til að Alþingi álykti að fela dómsmálaráðherra að skipa nefnd til að kanna og gera úttekt á veitingu reynslulausnar skv. 40.--42. gr. almennra hegningarlaga. Kannað verði m.a. hversu algengt er að beita því úrræði, hvernig háttað er eftirliti með því að skilyrði reynslulausnar séu haldin og hversu mörg brot eru framin af einstaklingum á reynslulausn. Jafnframt verði sérstaklega kannað hvort ástæða sé til að breyta framkvæmd reynslulausnar á þann veg að það verði hlutverk dómara að ákveða hvort fangi skuli látinn laus til reynslu í stað Fangelsismálastofnunar ríkisins, sbr. 1. mgr. 40. gr. almennra hegningarlaga.

Nefndin telur nauðsynlegt að þessi könnun fari fram jafnframt því sem kannaður verði munur á veitingu reynslulausnar þegar fangi hefur afplánað 2/3 hluta refsitímans skv. 1. mgr. 40. gr. almennra hegningarlaga og þegar liðinn er helmingur refsitímans skv. 2. mgr. 40. gr. laganna.

Þá ræddi nefndin, herra forseti, í þessu sambandi þær reglur sem gilda um fullnustu refsingar með samfélagsþjónustu skv. IV. kafla laga um fangelsi og fangavist, nr. 48/1988, en skv. 24. gr. þeirra laga er það Fangelsismálastofnun sem ákveður hvort fangelsisdómur verði fullnustaður með samfélagsþjónustu og hvaða samfélagsþjónustu dómþoli sinni í hverju tilviki. Sama gildi um á hve löngum tíma samfélagsþjónusta skuli innt af hendi en tekið er fram að sá tími skuli þó aldrei vera skemmri en tveir mánuðir. Það er mat allsherjarnefndar að eðlilegt sé að sú nefnd sem skipuð verði samkvæmt tillögunni kanni einnig framkvæmd á veitingu samfélagsþjónustu þar sem það úrræði er í eðli sínu refsing. Jafnframt verði m.a. tekið til skoðunar hvort ákvörðun um fullnustu refsingar með samfélagsþjónustu eigi að vera hlutverk Fangelsismálastofnunar eða dómstóla með þeim röksemdum sem fram koma í greinargerð með tillögunni.

Herra forseti. Við ræddum einnig hvort við ættum að afmarka þann tíma sem nefndin hefði til umráða til þess að skila nál. en nefndin ákvað að gera það ekki. Hún áleit engu að síður að það ætti ekki að líða meira en eitt ár frá samþykkt þessarar tillögu.

Allshn. leggur samhljóða til að þessi tillaga verði samþykkt óbreytt.