Almennar stjórnmálaumræður (útvarpsumræður)

Miðvikudaginn 12. mars 2003, kl. 19:51:41 (4859)

2003-03-12 19:51:41# 128. lþ. 98.1 fundur 493#B almennar stjórnmálaumræður (útvarpsumræður)#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 98. fundur, 128. lþ.

[19:51]

Forseti (Halldór Blöndal):

Umræðurnar verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Þær fara þannig fram að hver þingflokkur fær 22 mínútur til umráða sem skiptast í þrjár umferðir, 10 mínútur í fyrstu umferð og 6 mínútur í annarri og síðustu umferð. Kristján Pálsson, 8. þm. Reykn., utan flokka, hefur 11 mínútur og talar síðastur í fyrstu umferð.

Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn flokkanna verða:

Fyrir Samfylkinguna talar í fyrstu umferð Bryndís Hlöðversdóttir, 9. þm. Reykv., í annarri umferð Einar Már Sigurðarson, 4. þm. Austurl., en í þriðju umferð talar Lúðvík Bergvinsson, 6. þm. Suðurl.

Fyrir Sjálfstæðisflokk tala í fyrstu umferð Árni R. Árnason, 11. þm. Reykn., og Ásta Möller, 19. þm. Reykv., í annarri umferð Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 5. þm. Reykn., en í þeirri þriðju Einar K. Guðfinnsson, 1. þm. Vestf.

Ræðumenn Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs verða í fyrstu umferð Ögmundur Jónasson, 13. þm. Reykv., í annarri umferð Þuríður Backman, 5. þm. Austurl., en Árni Steinar Jóhannsson, 6. þm. Norðurl. e., í þriðju umferð.

Fyrir Framsóknarflokk talar Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra í fyrstu umferð, í annarri Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra, en í þriðju umferð Magnús Stefánsson, 2. þm. Vesturl.

Fyrir Frjálslynda flokkinn tala í fyrstu umferð Sverrir Hermannsson, 18. þm. Reykv., en Guðjón A. Kristjánsson, 4. þm. Vestf., í annarri og í þriðju umferð.