Nýr stofnsamningur Fríverslunarsamtaka Evrópu

Fimmtudaginn 13. mars 2003, kl. 20:28:10 (4983)

2003-03-13 20:28:10# 128. lþ. 100.1 fundur 597. mál: #A nýr stofnsamningur Fríverslunarsamtaka Evrópu# (breyting ýmissa laga) frv. 72/2003, RG
[prenta uppsett í dálka] 100. fundur, 128. lþ.

[20:28]

Rannveig Guðmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Fyrstu 11 málin á dagskrá þessa fundar eru frá utanrmn. og hin málin eru öll breytingar á viðaukum við EES-samninginn og verður mælt fyrir þeim í framhaldi af ræðu formanns nefndarinnar, Sigríðar Önnu Þórðardóttur. Ég vil taka það fram að það er sameiginlegt nefndarálit við öllum þessum málum og lýsa því að Samfylkingin stendur að afgreiðslu þeirra allra þannig að ég tel ekki ástæðu til að taka til máls um þau mál sem verður mælt fyrir í kjölfar fyrsta málsins.