Breyting á XI. viðauka við EES-samninginn

Fimmtudaginn 13. mars 2003, kl. 20:29:16 (4984)

2003-03-13 20:29:16# 128. lþ. 100.2 fundur 618. mál: #A breyting á XI. viðauka við EES-samninginn# (póstþjónusta) þál. 22/128, Frsm. SAÞ
[prenta uppsett í dálka] 100. fundur, 128. lþ.

[20:29]

Frsm. utanrmn. (Sigríður A. Þórðardóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 168/2002, um breytingu á XI. viðauka (Fjarskiptaþjónusta) við EES-samninginn. Efni tilskipunar þeirrar sem hér um ræðir hefur þegar verið lögfest á Alþingi með frv. sem hæstv. samgrh. lagði fram á haustþingi og varð að lögum fyrir áramót.

Nefndin leggur einróma til að tillagan verði samþykkt.