Breyting á IX. viðauka við EES-samninginn

Fimmtudaginn 13. mars 2003, kl. 20:35:12 (4988)

2003-03-13 20:35:12# 128. lþ. 100.6 fundur 663. mál: #A breyting á IX. viðauka við EES-samninginn# (vátryggingafélög) þál. 26/128, Frsm. SAÞ
[prenta uppsett í dálka] 100. fundur, 128. lþ.

[20:35]

Frsm. utanrmn. (Sigríður A. Þórðardóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá utanrmn. um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 166/2002, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

Efni tilskipunar þeirrar sem hér er verið að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara af hefur þegar verið lögfest á Alþingi með frv. sem viðskrh. lagði fram fyrr í vetur og varð að lögum 10. mars sl.

Nefndin leggur einróma til að tillagan verði samþykkt.